Innskráningar kubbur

Auglýsing

litla skott...

Myndasíðan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

hvað er hollt að eiga mörg pör af skóm?

Skál fyrir týndum sálum !

Konur gætu aldrei fundið upp vopn eða morðtól. Þær mundu finna upp vopn sem léti óvininn fá svo mikla sektarkennd að hann gæfist upp og bæðist afsökunar!!!

final countdown

Klukkan

Leit

nýtt upphaf...

16. mars 2009 klukkan 14:21
Jæja...þá er komið að því ...endurvaknig bloggsins...ég hef sem sagt ákveðið að byrja aftur að blogga....planið er að skella inn færslu minnst tvisvar í viku og nöldra svolítið yfir misförum míum og hlægja af óförum annara....er það ekki vaninn !! heheh.....

Bloggið hefur , ekki bara hjá mér orðið undið í hinni miklu Facebook væðingu landans...en NEI ekki meir....hér með heiti ég því að vanrækja ekki mitt litla en máttuga blogg !! heyr heyr.....

Nr.4

10. desember 2008 klukkan 16:48
Jæja þá er orðið jafnt í liðum á Hátúninu,kl 9:12 þann 9. des fæddist prinsinn og var 4140 gr. og 53 cm. Hann er ósköp stilltur og prúður og vill helst bara sofa. Það eru komnar nokkrar myndir inn á myndasíðuna og við reynum að setja inn fleiri við betra tækifæri. Vildi nú bara skella þessu hér inn, stutt og laggott...takk takk.

Aðventa

30. nóvember 2008 klukkan 22:46

Gleðilega aðventu kæra fólk. Ég er búin að búa til aðventukrans , já í fyrsta sinn gerði ég "minns eigins krans" úr greni og öllu.....er svoo hrikalega stolt af honum. Fékk reyndar smá hjálp, börnin tóku þátt. Annars ætla ég bara að hafa þetta stutt mig langaði bara að setja inn smá hrós og þakkir. Já gott er að eiga góða að, sérstaklega þegar maður er orðin eins og hvalreki og niðurtalning það eina sem kemst að í hausnum á manni. Hún Drífa vinkona mín er kjarnakona, hún hringdi í mig í dag bara svona til að spjalla um daginn og veginn( þó að hún búi reyndar aðeins nokkrum húsum frá er alltaf gott að taka bara upp tólið....hehehe) hún spurði hvort að ég væri eitthvað byrjuð að jólaskreyta og ég dæsti bara og sagðist varla vilja setja jólaljós í drulluga glugga með rykföllnum gardínum fyrir !! skiljanlegt, ekki satt ?
jájá...þá sagði mín bara; heyrðu ég kem bara, og við rympum þessu af, við verðum enga stund að þessu saman!!!!  JÁ OK... og það var ekki að spyrja að því, nú er komið kvöld og allar gardínur hreinar og glugggarnir glansandi og komið jólaskraut í þá flesta !!!  Konur er konum verstar hvað ? ójá , ég kannski gleymdi að minnast á það að hún Drífa er líka ólétt...wooohooo . Takk Drífa mín , elsku Drífa mín.

sætt...

19. nóvember 2008 klukkan 17:29
Ég búði til eitt handa þínum,
það var mynd af hjartanu í mínum.
Á því er gluggi og þar var þinns,
því þinns er bestasti vinur minns!

1 ár...

06. nóvember 2008 klukkan 17:18

1 ár... já í dag 6 Nóvember á ég árs afmæli..., það er ekki fyrr en á morgun , 7. Nóv,sem hún Katla Mist á afmæli.
 Í dag er nákvæmlega eitt á síðan ég hætti að reykja !! mikið rosalega er ég ánægð með að hafa náð þessum árangri, og þar skemmtilegasta er að það var ekki eins erfitt og ég var búin að segja sjálfri mér að það yrði. Auðvita eru búnar að koma stundir þar sem mig blóðlangaði til þess að gefa bara skít í allt og kveikja mér í ....er þær voru bara svo fljótar að líða hjá að það tók því ekki að klæða sig í skó og arka af stað í sjoppuna...hehe. Mig langar til þess að taka það sérstaklega fram að ég keypti aldrei nigótín tyggjó eða nigótín plástra eða neitt annað sem er jafnvel meira vanabindandi en retturnar sjálfar...ég bara hætti !!

ár...fár...

02. nóvember 2008 klukkan 15:47
Jæja, þá er nú að verða komið ár síðan ég varð léttari...en viti menn ég er bara ekkert léttari, þyngri ef eitthvað er, Það er auðvita ekki mér að kenna ! nei nei nei alls ekki , það er auðvita allt Óla að kenna, hihihi.... en öllu rugli fjarri þá er litli skoppulingurinn  hún Katla Mist að veða eins árs eftir nokkra daga, nánar tiltekið föstudaginn 7.nóv, vá hvað tíminn líður, maður verður komin á ellilífeyrinn áður en maður veit af. Auðvita á að halda ammó veislu og alles, búið að kaupa rugguhest handa prakkaranum í afmælisgjöf og spenningurinn fyrir því hvort hún nær að byrja að labba fyrir daginn mikla eykst , ég tel nú reyndar litlar líkur á því en það er aldrei að vita, hún er svoooo nálægt því.
Vonda veðrið sem gekk yfir hálft landið um daginnn fór að öllum líkindum ekki framhjá neinum. Maður horfir yfirleitt á fréttirnar daginn eftir og hneykslast á þeim sem ekki voru með vaðið fyrir neðan sig og þurftu á hjálp björgunarsveita og annara að halda.....;voðalega er fólk tregt" hugsar maður , það ætlar ekki að læra ,ekki frekar en þegar fyrsti snjórinn kemur og það fyllast öll hjólbarðaverkstæði af því að auðvita hefur aldrei snjóað áður á fróni og hvað þá á þessum tíma árs, yfir veturinn !! ( er jeppinn komin á vetrardekk Sonja ?...ummm neiii reyndar ekki !!! ææ..., hehh)
allavega , þá erum við ( þá á ég við ekki ég , bara Óli og co.)búin að vera að skipta um járn á þakinu , gengið allti lagi og svona, svo kom veðrið og það uppgötvaðist að eitt kjaljárn/kjöljárn var ekki nægjanlega vel fest og þurfti því að binda smá reipi frá svölum og yfir þakið að girðingu, en úpps, við áttum ekki spotta! Og í hvern var hringt , jú auðvita björgunarsveitina...ahahahahhahahahahha. Það er nú ekki allt, þegar ég stend við gluggan að gá hvort ekki bólaði á sveitarmönnum þá renndi lítill yaris í hlað " útkallssveit björgunnarsveitanna" stóð á hliðinni, ég hugsaði með mér nú jæja , það þarf nú kannski ekki stærri bíl en þetta til að ferja einn spotta en viti menn í humátt á eftir litla krílinu kom sá al stæðsti bíll sem sveitin hefur uppá  að bjóða....með kerru fulla að búnaði ! út úr ferlíkinu komu svo ekki 3 ekki 5 ekki 7, nei bara 9 stykki björgunarsveitarmenn, allir með hjálma með ljósi á ...þá eru ekki meðtaldir þessir 2 sem sátu enn í yarisnum ! man einhver hvað átti að gera , já einmitt binda tvo hnúta á reipi. Einn af þeim kom upp og skellti sér út á svalir stóð sig gasalega vel við að festa járnið en á meða stóð restin úti í innkeyrslu og horfði hugfangin á hetjuna bjarga aumum almúganum úr prísund þakplatnana...hahahah....svo skyndilega fór öll hersingin af stað og gekk af einhverjum ástæðum um alla innkeyrslu sem óð væri....þá fyrst sprakk húsfreyjan úr hlátri, þau voru öll með ljósahjálma i myrkrinu ( auðvita) og þetta voru eins og eldflugurnar sem  maður sér í bíómyndunum flögrandi um garðinn minn....
EN...þótt að þetta hafi verið frekat fyndið og nördalegt allt saman þá var ég samt ósköp þakklát fyrir hjálpina, og enduðum með að kaupa 2 neyðarkalla í bónus í gær og vil ég nota tækifærið og hvetja alla til að kaupa allavega 1, maður veit aldrei hvenar maður gæti þurft á þessu fólki að halda.

Amma í Hrísey...

01. október 2008 klukkan 22:11

Það ættu allir að vera jafn lukkulegir og ég að eiga ömmu í Hrísey. Mín á reyndar heima á Dalvik en það eru landafræðilegir smámunir. Hún er svo mikl perla þessi kona og hæfileikarík með eindæmum. Hún prjónar, heklar, málar, föndrar og dreifir góðum straumum til fólks með hugarorkunni einni saman þar sem hún er líka reikimeistari ! Hún og afi eiga 6 börn, fulla skúffu af barnabörnum og troðfullan skáp af barnabarnabörnum...og já hún er með alla afmælisdaga á hreinu. Að eiga ömmu í Hrísey er eins og að eiga góða vinkonu, það er að segja símalega séð, það er alltaf hægt að slá á þráðinn og slúðra svolítið, flissa að vitleysunni í hinum í ættinni og svo bara spjalla ef manni leiðist.
Það er bara ein "amma í Hrísey" og það er amma mín....þó hún búi núna á Dalvík

snap snap...

17. september 2008 klukkan 10:26

jíííha! fékk smá verkgleði í gær og skellti nýjum myndum og fyrir þá sem ekki vita hvar á að smella með músinni , þá er að undir litla skotti hægra megin...>>>>
Annars fór Katla í skoðum í gær (16/9) og var mæld og skoðuð á alla kanta....er sem sagt tveggja og hálfs árs í þyngd og 18 mánaða á lengd, það er á mannamáli 14 kg og 79cm ! sem sagt fullkomin...

heyr heyr...

11. september 2008 klukkan 06:50
Mig langar til þess að setja hér inn hluta úr leiðara ágústshefti Mannlífs eftir  Sigurjón M. Egilsson. (vonandi er honum sama!)
  Meðan eignir fólks og fyrirtækja brenna upp frá mínútu til mínútu, meðan hundruð ef ekki þúsundir missa vinnuna í hverri viku, meðan afborganir af heimilum og öðrum fjárfestingum rjúka upp fyrir fjárráð skuldara, meðan hræðslan eykst meðal Íslendinga, meðan allt verður dýrara og dýrara sést ekki til ríkisstjórnarinnar. Ráðin var efnahagsráðgjafi sem hóf starftið á sumarleyfi. Á sama tíma og eldar brenna. ekkert sést eða heyrist til forsætisráðherrans og ekki til utanríkisráðherrans. Þau bera ábyrgðina. Þau óskuðu eftir henni og hún er þeirra, umfram allra annara.
það er ekki nóg að gala hátt í kosningabaráttu en stökkva undan á flótta þegar óþægileg verk kalla á  framkvæmdir !
og hana nú ! heyr heyr...
Sonja
1 athugasemd

hjarta spaði....

18. júlí 2008 klukkan 14:09

Jæja þá er það sumarfærslan, T&V fóru í sumarbúðir í vikunni þannig að við verðum bara 3 í kotinu næstu daga....doldið lonely en bara fínt annað slagið. Óli er búin að vera extra dugnlegur á þakinu og þriðji og síðasti kvisturinn óðum að verða kominn upp.
Katla Mist fór til hjartalæknisins....eða réttara sagt við fórum með Kötlu Mist til hjartalæknisins... og það kom  bara eins vel út og við gátum vonað , annað gatið er horfið og hitt hefur minnkað. Við þurfum því ekki að koma aftur fyrr en  eftir ár og það verður að öllum líkindum síðasta skoðunin ef allt gengur eftir.
Æi það er eitthvað svo gott veður úti núna ....ég nenni ekki að blogga vildi samt bara rétt í lokin minna á bloggið hennar Thelmu sem getur verið frekar fyndið þegar hún nennir að blogga.... ein 11 að verða 17 hahahaha... ó já bæ þe vei, var ég búin að segja ykkur að ég er í suuuumarfrííí-i... ne ne ne ne ne ne....